Fréttir | 08. mars 2010 - kl. 12:02 Opinn kynningarfundur Rammaáætlunar Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar í Skriðunni (í húsakynnum Kennaraháskólans við Stakkahlíð) þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Þar verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Fundurinn verður sendur út á netinu og er aðgangur að útsendingunni um vefsíðu rammaáætlunar, www. rammaáætlun.is.
Meira |
Fréttir | 04. mars 2010 - kl. 10:27 Spegill fortíðar - silfur framtíðar Fyrirlestraröð vitafélagsins Fimmtudagskvöldið 4. mars kl. 20 munu þau Helga Katrín Tryggvadóttir og Kristján Sveinsson halda fyrirlestra um konur á sjó og hafnir á Íslandi í Sjóminjasafninu Víkinni í Reykjavík. Allir velkomnir. Meira |
Fréttir | 26. febrúar 2010 - kl. 16:41 Félag íslenskra fornleifafræðinga - annað umræðukvöldið 2010 Fornleifar í hættu – Strandminjar. Annað umræðukvöld ársins 2010 verður haldið miðvikudaginn 3. mars nk. Ragnheiður Traustadóttir, stjórnandi Hólarannsóknarinnar mun koma og tala um Kolkuós en höfn Hólastaðar var að Kolkuósi á snemm miðöldum. Mun Ragnheiður fjalla um ástand minjanna og uppgröftinn sem hún hefur staðið þar fyrir á síðustu árum.
Meira |
Fréttir | 24. febrúar 2010 - kl. 16:23 Trees and Dynamics Viljum benda áhugasömum á alþjóðlega og þverfaglega ráðstefnu um tré sem haldin verður í Frakklandi 15.-19. nóvember 2010. Meðal efnis verður nýting skógar í gegnum tíðina, samspil manns og skógar, og áhrif mannsins á umhverfi sitt. Meira |
Fréttir | 08. febrúar 2010 - kl. 14:12 Nýtt vísindarit um fornleifarannsóknir að Hofstöðum Afrakstur og niðurstöður rannsókna Fornleifastofnunar Íslands á víkingabyggð að Hofstöðum í Mývatnssveit hefur nú verið gefin út í veglegu riti. Hofstaðaminjar eru með þekktustu fornleifum á landinu. Á árunum 1991 - 2002 gerði alþjóðlegur hópur vísindamanna þar umfangsmiklar
fornleifarannsóknir. Var verkefnið unnið með stuðningi Rannís, National Geographic og fleiri aðila. Meira |
Fréttir | 04. febrúar 2010 - kl. 12:23 EAC Málþing. Fjarkannanir og minjavarsla á 21. öldinni Reykjavík, 25.-27. mars 2010 Á þessu málþingi verður tekið fyrir fjarkannanir í þágu minjavörslunnar í byrjun 21. aldarinnar. Meginþemu málþingins eru: Skráning fornleifa; kortagerð, eftirlit með ástandi minja; og notkun/nýting eldri loftmynda. Horft verður til aðferða og tækni sem hafa lengi verið í þróun og notkun, sem og nýrrar tækni og gagna.
Málþingið sem haldið er á Hótel Loftleiðum er öllum opið en nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku fyrir 10. mars næstkomandi til Gunnars Bollasonar (gunnar@fornleifavernd.is). Meira |
 |
| Þingvellir | Fréttir | 04. febrúar 2010 - kl. 11:49 Verkefni um raðtilnefningu víkingaminja komið á skrið undir forystu Íslands Ísland stýrir fjölþjóðlegu verkefni um sem miðar að raðtilnefningu víkingaminja á heimsminjaskrá UNESCO. Vinnuheiti verkefnisins er PHENOMENA AND MONUMENTS OF VIKING CULTURE. Fornleifavernd ríkisins hefur sett upp verkefnisskrifstofu í umboði Mennta- og menningarmálaráðuneytisins til þess að sjá um framkvæmd tilnefningarinnar og hefur Sólveig H. Georgsdóttir MA verið ráðin verkefnisstjóri frá 1. ágúst s.l. Markmiðið er að tilnefningarskjal verði afhent Heimsminjaskrifstofu UNESCO fyrir 1. febrúar 2012 og að raðtilnefningin verði samþykkt árið 2013. Meira |
Fréttir | 03. febrúar 2010 - kl. 13:04 Spegill fortíðar - silfur framtíðar Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar Spegill fortíðar – silfur framtíðar
Er yfirskrift fyrirlestra sem Íslenska vitafélagið stendur fyrir í Sjóminjasafni Reykjavíkur –Víkinni. Fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20:00 verður tveimur merkum stöðum gerð skil í máli og myndum. Agnes Stefánsdóttir segir frá fornminjum á Reykjanesi og frá Reykjanesvita og safnvörðurinn Finnbogi Bernódusson mætir í fornum sjóklæðum og ræðir um Ósvör. Umfærður og kaffi. Meira |
 |
| Við undirritun samnings við Loftmyndir ehf janúar 2010. | Fréttir | 18. janúar 2010 - kl. 15:25 Undirritun samnings við Loftmyndir ehf Fornleifavernd ríkisins og Loftmyndir ehf skrifuðu nýlega undir samning um rekstur kortasjár á heimasíðu Fornleifaverndar. Meira |
 |
| Natur og Kulturarv | Fréttir | 13. janúar 2010 - kl. 15:23 Náttúra, menningarminjar og atvinnusköpun Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar til atvinnusköpunar og þróunar. Um er að ræða aðra ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja. Meira |
Fréttir | 05. janúar 2010 - kl. 09:55 Umræðukvöld Félags íslenskra fornleifafræðinga Passing into poetry: Viking Age mortuary theatre and the origins of Norse mythology Fyrsta umræðukvöld ársins 2010 verður haldið miðvikudaginn 6. janúar nk. Neil Price, prófessor í fornleifafræði við Háskólann í Aberdeen, Skotlandi, mun koma og fjalla um hugarheim víkinga. Meira |
Fréttir | 22. desember 2009 - kl. 13:16 Gleðileg jól Við óskum ykkur gleðilegra jóla. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Starfsfólk Fornleifaverndar ríkisins Meira |