Í reglum um veitingu leyfa til fornleifarannsókna segir: "Að lokinni vettvangsrannsókn hvers árs skal skila inn til Fornleifaverndar eyðublaði þar sem fram koma grunnupplýsingar um gang rannsóknarinnar það árið. Fornleifavernd ríkisins mun gefa út yfirlit yfir fornleifarannsóknir hvers árs sem byggir á þessum upplýsingum." Litið er á þessi eyðublöð sem opinber gögn og verða þau gerð aðgengileg almenningi fljótlega eftir að þeim er skilað inn. Ætlast er til að eyðublaði þessu sé skilað inn, útfylltu, til Fornleifaverndar ríkisins strax að lokinni vettvangsrannsókn. Frekari upplýsingar komi svo fram í áfangaskýrslu/framvinduskýrslu/lokaskýrslu.
2012-10-05 699.88 KB 558
Umsókn um leyfi vegna myndatöku
Ljósmynda- og kvikmyndatökur eru almennt heimilaðar í og við fornleifar á Íslandi. Ljósmynda- og kvikmyndataka í atvinnuskyni er þó háð samþykki Fornleifaverndar ríkisins. Senda skal inn skriflega umsókn til minjavarðar viðeigandi minjasvæðis, sjá www. fornleifavernd.is.