torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

 

 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-20 af 20  
KlukkanDagsetningFrétt
09:22 01. sep. 2010   Evrópski menningarminjadagurinn 2010
Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 5. september 2010. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Fornleifavernd ríkisins mun bjóða upp á ýmsa viðburði um allt land í tilefni dagsins.
15:44 30. ág. 2010   Hverjir voru skrælingjar?
Dr. William Fitzhugh heldur fyrirlestur á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16, mánudaginn 30. ágúst kl. 17:00 Dr Fitzhugh er forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar um heimskautafræði við Smithsonian stofnunina í Wasington D.C Hann fæst fyrst og fremst við rannsóknir á frumbyggjum heimskautasvæðisins í austurhluta Kanada og hefur ritað fjölda bóka og greina um fræðasvið sitt.
13:10 18. ág. 2010   Fornleifar á Bæ í Bæjarsveit, Borgarfirði
Í byrjun júlí skoðuðu starfsmenn Fornleifaverndarinnar fornminjar sem komu í ljós við jarðvegsskipti framan við kirkjuna á Bæ í Bæjarsveit. Grafið hafði verið um 2 m niður á móbergshellu þegar minjarnar komu í ljós.
20:09 06. júl. 2010   Fornleifar á Þingmúla
Undanfarið hafa starfsmenn Fornleifaverndar verið að kanna minjar er komu í ljós þegar gamalt steypt íbúðarhús á hlaðinu á Þingmúla var rifið en Guðmundur Ármannsson, bóndi á Vaði, og Sigurbjörn Árnason, bóndi á Þingmúla, létu vita um fundinn. Snið og botn grunnsins hafa nú verið hreinsuð og teiknuð upp. Minjavörður Austurlands, Inga Sóley Kristjönudóttir, telur líklegt að um gamla bæjarstæðið sé að ræða.
10:41 30. jún. 2010   Náttúra, menningarminjar og ferðaþjónusta
Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar í ferðaþjónustu.
Um er að ræða þriðju ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja. Ráðstefnuna átti að halda í apríl síðastliðnum en frestaðist vegna eldgoss í Eyjafjallajökli.
16:23 28. jún. 2010   Árlegur fundur þjóðminjavarða Norðurlanda
Um helgina fór fram hinn árlegi fundur þjóðminjavarða Norðurlanda. Fundurinn fór fram á Ísafirði og Stykkishólmi. Á fundinn mættu aðilar frá Danmörk, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Grænlandi en þetta er í fyrsta skipti sem þeir sitja þennan fund. Fyrri daginn fór hver stofnun yfir sín áherslumál og stefnu en auk þess voru ýmis samvinnuverkefni kynnt fyrir fundargestum. Seinni daginn var haldinn seminar um hinn „stafræna menningararf“.
11:42 14. maí 2010   Laus störf hjá Fornleifavernd ríkisins
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsa nú eftir umsóknum um störf við tímabundin átaksverkefni á vegum ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Störfin eru opin öllum sem eru á atvinnuleysisskrá og námsmönnum sem eru á milli anna eða skólastiga. Opnað verður fyrir umsóknir á www.vmst.is miðvikudaginn 12. maí en umsóknarfrestur er til 19. maí, sjá síðu Vinnumálastofnunar. Nokkur störf hjá Fornleifavernd ríkisins eru auglýst þar á meðal.
09:49 28. apr. 2010   Ráðstefna um björgunar- og framkvæmdatengdar fornleifarannsóknir
Þann 8. maí nk. gengst Félag íslenskra fornleifafræðinga fyrir ráðstefnu um björgunar- og framkvæmdatengda uppgrefti í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við safnið og Fornleifavernd ríkisins. Björgunaruppgreftir eru orðnir stór hluti þeirra verkefna sem fornleifafræðingar fást við. Þar eru forsendur hins vegar allt aðrar en við rannsóknaruppgrefti þar sem fræðimenn velja sér uppgraftarstaði eftir rannsóknaráhuga. Fjallað verður um helstu niðurstöður slíkra uppgrafta frá síðustu árum (2007-2009) en þó er markmiðið fyrst og fremst að skapa umræðu um björgunaruppgrefti, framkvæmd þeirra, umgjörð, rannsóknaspurningar og ekki síst hvað verður um upplýsingarnar sem safnast. Ráðstefnan er öllum opin.
14:13 27. apr. 2010   Endurgerð Bláskeggsárbrúar lokið
Gamla brúin yfir Bláskeggsá í Hvalfirði var endurvígð 22. apríl s.l. Brúin var upphaflega byggð árið 1907. Bygging hennar var brautryðjandaverk, því hún var fyrsta steinsteypta brú á Íslandi, utan Reykjavíkur. Árið 2007 var skipuð nefnd með fulltrúum frá Fornleifavernd ríkisins, Hvalfjarðarsveit og Vegagerðinni sem falið var að vinna að endurgerð brúarinnar. Brúin hefur nú verið færð í upprunalegt horf og upplýsingaskilti sett upp í nágrenni hennar.
09:35 19. apr. 2010   Hofstaðir í fortíð og framtíð
Á Hofstöðum í Mývatnssveit hafa farið fram umfangsmiklar fornleifarannsóknir undanfarin ár. Í tilefni af útkomu rannsóknarritsins Hofstaðir - Excavations of a Viking Age Feasting Hall in North-Eastern Iceland er efnt til málþings á Narfastöðum í Reykjadal 24. apríl kl. 11:00-16:00. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Þóru Pétursdóttur, Fornleifastofnun Íslands ses, thora@instarch.is.
14:18 23. mars 2010   Náttúra, menningarminjar og ferðaþjónusta
Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar í ferðaþjónustu.
Um er að ræða þriðju ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja.
15:11 19. mars 2010   Dagskrá ráðstefnu um fjarkannanir og minjavörslu
Hér er dagskrá og útdrættir fyrirlestra ráðstefnunnar um fjarkannanir og minjavörslu sem haldin verður á Hótel Loftleiðum 25.-27. mars 2010.
12:02 08. mars 2010   Opinn kynningarfundur Rammaáætlunar
Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar í Skriðunni (í húsakynnum Kennaraháskólans við Stakkahlíð) þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Þar verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Fundurinn verður sendur út á netinu og er aðgangur að útsendingunni um vefsíðu rammaáætlunar, www. rammaáætlun.is.
10:27 04. mars 2010   Spegill fortíðar - silfur framtíðar
Fyrirlestraröð vitafélagsins
Fimmtudagskvöldið 4. mars kl. 20 munu þau Helga Katrín Tryggvadóttir og Kristján Sveinsson halda fyrirlestra um konur á sjó og hafnir á Íslandi í Sjóminjasafninu Víkinni í Reykjavík. Allir velkomnir.
16:41 26. feb. 2010   Félag íslenskra fornleifafræðinga - annað umræðukvöldið 2010
Fornleifar í hættu – Strandminjar.
Annað umræðukvöld ársins 2010 verður haldið miðvikudaginn 3. mars nk. Ragnheiður Traustadóttir, stjórnandi Hólarannsóknarinnar mun koma og tala um Kolkuós en höfn Hólastaðar var að Kolkuósi á snemm miðöldum.  Mun Ragnheiður fjalla um ástand minjanna og uppgröftinn sem hún hefur staðið þar fyrir á síðustu árum.
16:23 24. feb. 2010   Trees and Dynamics
Viljum benda áhugasömum á alþjóðlega og þverfaglega ráðstefnu um tré sem haldin verður í Frakklandi 15.-19. nóvember 2010. Meðal efnis verður nýting skógar í gegnum tíðina, samspil manns og skógar, og áhrif mannsins á umhverfi sitt.
14:12 08. feb. 2010   Nýtt vísindarit um fornleifarannsóknir að Hofstöðum
Afrakstur og niðurstöður rannsókna Fornleifastofnunar Íslands á víkingabyggð að Hofstöðum í Mývatnssveit hefur nú verið gefin út í veglegu riti. Hofstaðaminjar eru með þekktustu fornleifum á landinu. Á árunum 1991 - 2002 gerði alþjóðlegur hópur vísindamanna þar umfangsmiklar fornleifarannsóknir. Var verkefnið unnið með stuðningi Rannís, National Geographic og fleiri aðila.
12:23 04. feb. 2010   EAC Málþing. Fjarkannanir og minjavarsla á 21. öldinni
Reykjavík, 25.-27. mars 2010
Á þessu málþingi verður tekið fyrir fjarkannanir í þágu minjavörslunnar í byrjun 21. aldarinnar. Meginþemu málþingins eru: Skráning fornleifa; kortagerð, eftirlit með ástandi minja; og notkun/nýting eldri loftmynda. Horft verður til aðferða og tækni sem hafa lengi verið í þróun og notkun, sem og nýrrar tækni og gagna. Málþingið sem haldið er á Hótel Loftleiðum er öllum opið en nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku fyrir 10. mars næstkomandi til Gunnars Bollasonar (gunnar@fornleifavernd.is).
11:49 04. feb. 2010   Verkefni um raðtilnefningu víkingaminja komið á skrið undir forystu Íslands
Ísland stýrir fjölþjóðlegu verkefni um sem miðar að raðtilnefningu víkingaminja á heimsminjaskrá UNESCO. Vinnuheiti verkefnisins er PHENOMENA AND MONUMENTS OF VIKING CULTURE. Fornleifavernd ríkisins hefur sett upp verkefnisskrifstofu í umboði Mennta- og menningarmálaráðuneytisins til þess að sjá um framkvæmd tilnefningarinnar og hefur Sólveig H. Georgsdóttir MA verið ráðin verkefnisstjóri frá 1. ágúst s.l. Markmiðið er að tilnefningarskjal verði afhent Heimsminjaskrifstofu UNESCO fyrir 1. febrúar 2012 og að raðtilnefningin verði samþykkt árið 2013.
13:04 03. feb. 2010   Spegill fortíðar - silfur framtíðar
Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar
Spegill fortíðar – silfur framtíðar Er yfirskrift fyrirlestra sem Íslenska vitafélagið stendur fyrir í Sjóminjasafni Reykjavíkur –Víkinni. Fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20:00 verður tveimur merkum stöðum gerð skil í máli og myndum. Agnes Stefánsdóttir segir frá fornminjum á Reykjanesi og frá Reykjanesvita og safnvörðurinn Finnbogi Bernódusson mætir í fornum sjóklæðum og ræðir um Ósvör. Umfærður og kaffi.
   

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL