Markmið Fornleifaverndar ríkisins er að stofnunin hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel menntuðu starfsfólki, sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi og geti þannig tekið virkan þátt í þróun stofnunarinnar.
Lögð er áhersla
- á að starfsmenn þekki hlutverk Fornleifaverndar ríkisins og verklagsreglur stofnunarinnar
- markviss vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- skýra ákvörðunartöku
- hvetjandi starfsumhverfi
- að stofnunin sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem starfsfólk er búið undir krefjandi verkefni með markvissri og skipulegri þjálfun
- að hæfni ráði vali á starfsmönnum.
Ráðningar
- Ráðnir skulu til starfa hæfir og metnaðarfullir einstaklingar sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni í síbreytilegu umhverfi.
- Val á starfsfólki byggist á hlutlausum, faglegum vinnubrögðum.
- Gengið er frá öllum ráðningum með formlegum hætti.
- Við gerum starfslýsingar fyrir öll störf og uppfærum þær þegar störf breytast.
Starfsþróun
- Möguleikar meðal starfsfólks eru jafnir til starfsframa, þannig að tryggt sé að hæfileikar nýtist sem best óháð kyni og aldri.
- Starfsmenn eigi kost á starfsmannasamtali a.m.k. einu sinni á ári.
Móttaka nýliða
- Nýir starfsmenn fá fljótlega nægilega þjálfun til þess að takast á við starfið og lögð er áhersla á að starfsmaðurinn geri sér fulla grein fyrir hlutverki sínu.
- Nýjum starfsmönnum er veitt grunnþekking og fræðsla með fóstrakerfi.
Upplýsingar
- Lagt er kapp á markvissa upplýsingagjöf til starfsmanna með reglubundnum fundum, innra neti og tölvupósti.
Jafnvægi vinnu og einkalífs
- Lögð er áhersla á jafnvægi milli starfs- og fjölskyldulífs eins og kostur er. Slíkur sveigjanleiki byggist á nánu samstarfi og trúnaði milli yfirmanns og undirmanns.
Starfsandi og virðing
- Fornleifavernd ríkisins vill stuðla að góðum starfsanda og sýna samstarfsmönnum og öðrum tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót.
Menntastefna
Fornleifavernd ríksins er ljóst mikilvægi sí- og endurmenntunar. Til þess að stofnunin geti vaxið og þroskast í síbreytilegu umhverfi er mikilvægt að starfsfólk fái tækifæri til að auka við þekkingu sína og færni
- Fornleifavernd ríkisins vill að starfsmenn séu vel þjálfaðir og meðvitaðir um nýjungar i sinni starfsgrein þannig að stofnunin sé ávallt fremst á sinu sviði. Starfsfólk Fornleifaverndar ber sjálft ábyrgð á því að fylgjast með nýjungum i starfsgrein sinni
- Starfsfólk skal sýna frumkvæði í skipulagningu símenntunar þess og tekur virkan þátt í árlegri endurskoðun þjálfunaráætlunar sinnar.
- Fræðsluþörf alls starfsfólks skal metin árlega til að tryggja að menntun starfsmanna stofnunarinnar sé miðuð við þarfir hennar. Stjórnendur miða áætlanir í fræðslumálum við framtíðarsýn stofnunarinnar
- Til þess að tryggja almenna þekkingu starfsmanna eru haldnar reglubundnar kynningar fyrir starfsmenn og ennfremur lögð áhersla á mikilvægi gæða stofnunarinnar.
- Námskeiðs- og ráðstefnubeiðnir starfsmanna eru metnar með það í huga að námið nýtist stofnuninni eða viðskiptavinum hennar
- Starfsfólk skal miðla þekkingu þeirri sem það hlýtur við endurmenntun til annarra starfsmanna stofnunarinnar með óformlegum eða formlegum hætti.