Borgarminjavörður/Minjasafn Reykjavíkur
Minjavarsla í Reykjavík er á verksviði borgarminjavarðar og minjasafnið sinnir margvíslegum verkefnum á því sviði. Fornleifadeild Minjasafns Reykjavíkur sér um framkvæmdaeftirlit, umhverfismat og fornleifaskráningu í Reykjavík.
|
Húsafriðunarnefnd ríkisins
Húsafriðunarnefnd ríkisins stuðlar að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar og metur hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gerir um það tillögur til menntamálaráðherra.
|
Menntamálaráðuneytið
Skrifstofa menningarmála undirbýr mótun menningarstefnu, hefur umsjón með framkvæmd hennar og annast almenna stjórnsýslu á sviði menningarmála. Þar er m.a. fjallað um málefni lista og menningararfs, fjölmiðlamál og mál er varða íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.
|
Safnaráð
Safnaráð er fjölskipað stjórnvald og stjórnsýslunefnd. Menntamálaráðherra skipar Safnaráð til fjögurra ára í senn. Safnaráð er samráðsvettvangur starfsemi lista- og minjasafna og hefur eftirlit með söfnum sem hljóta ríkisstyrki. Safnaráð úthlutar árlega styrkjum úr Safnasjóði.
|
Skipulagsstofnun
Skipulagsstofnun sinnir afgreiðslu og veitir leiðbeiningar um skipulags- og byggingarmál og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.
|
Umhverfisstofnun
Á Náttúruverndarsviði Umhverfisstofnunar er haft eftirlit með náttúru landsins og umsjón með náttúruverndarsvæðum. Unnið að undirbúningi að friðlýsingu svæða, höfð umsjón með gerð verndaráætlana fyrir náttúruverndarsvæði og skráningu náttúruminja.
|
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar.
|
Örnefnastofnun Íslands
Örnefnastofnun Íslands safnar íslenskum örnefnum frá öllum tímum þjóðarsögunnar - skráir þau og varðveitir á aðgengilegan hátt eftir viðurkenndum fræðilegum kröfum.
|
Breiðafjarðarnefnd
Breiðafjarðarnefnd hefur það hlutverk að vera umhverfisráðherra til ráðgjafar um það sem lýtur að framkvæmd laga nr. 54/1995, um hver Breiðafjarðar. jafnframt skal nefndin í samráði við sveitarfélögin láta gera verndaráætlun og senda hana til ráðherra til staðfestingar. Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir, náttúruverndarnefndir, Náttúruvernd ríkisins, minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu.
|
Þingvallanefnd og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Þingvallanefnd fer með yfirstjórn þjóðgarðsins, fyrir hönd Alþingis. Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna 2. júlí 2004 á fundi heimsminjanefndarinnar sem haldinn var í Suzhou í Kína
|
Heimsminjanefnd Íslands
Heimsminjanefnd Íslands vinnur að ýmsum verkefnum sem lúta að meginhlutverki nefndarinnar, þ.e. koma með tillögur um staði sem eiga heima á yfirlitsskránni og vinna að tilnefningu þeirra á heimsminjaskrá þegar ríkisstjórnin hefur samþykkt yfirlitsskrána.
|