Sunnudagur | Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | |
44 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 |
45 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
46 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
47 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
48 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Fimmtudaginn 26. janúar hófst ný fyrirlestraröð FÍF og FFÍ 2012 sem að þessu sinni ber yfirskriftina: Úr gnægtabúri úthaganna: sel og jaðarbyggð í íslenskri fornleifafræði.
Á næstu vikum munu 11 fræðimenn flytja fjölbreytileg erindi sem öll eiga það sameiginlegt að fjalla um nýlegar rannsóknir á seljum eða á býlum í úthögum – eða skilin þar á milli. Tveir til þrír fræðimenn flytja fyrirlestra hvert kvöld og á eftir verða umræður og spurningar. Fyrirlestrarnir verða á miðvikudags- og fimmtudagskvöldum og hefjast klukkan 20.00. Þeir verða haldnir í kjallara húsnæðis Fornleifaverndar ríkisins að Suðurgötu 39.
Minjastofnun Íslands - Suðurgötu 39 - 101 Reykjavík - Sími: 555-6630 - Fax: 555-6631 - Kt: 440113-0280 - Tölvupóstur:fornleifavernd(hja)fornleifavernd.is