Deildarstjóri umhverfismats
555 6634
Menntun
• Fil.kand. próf í fornleifafræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 1987.
• Nám í viðskiptadeild H.Í. 1979-1981.
• Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund 1978.
• Námskeið í stjórnsýslurétti fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins auk námskeiða í tölvunotkun o.fl.
Starfságrip
Vann við fornleifauppgröft á vegum Þjóðminjasafns Íslands á Þingnesi við Elliðavatn sumurin 1984 og 1985. Hóf störf hjá Þjóðminjasafni Íslands árið 1987. Tók þátt í fornleifarannsókn á Bessastöðum á árinu 1987. Starfaði sem forstöðumaður Nesstofusafns á Seltjarnarnesi frá árinu 1991 til 2000. Vann í fornleifadeild Þjóðminjasafns Íslands frá ársbyrjun 2000 til 30.10 2001. Aðallega við gerð umsagna í tenglsum við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda en einnig við fornleifaskráningu í Mosfellsbæ og tilfallandi rannsóknir. Hef starfað hjá Fornleifavernd ríkisins frá 1. nóv. 2001.
Félagsstörf
Var fulltrúi starfsmanna Þjóðminjasafns Íslands í þjóðminjaráði. Sat um tíma í fornleifanefnd. Hef átt sæti í stjórnum Félags íslenskra fornleifafræðinga, Félags íslenskra fræða-kjaradeild og Félagi áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Var endurskoðandi Félags íslenskra safnmanna. Er gjaldkeri Sögufélags Kjalarnesþings.