Viðburðir fornleifaverndar

Þú ert hér:Forsíða»Upplýsingar»Fréttir »Super User

Super User

Aliquam erat volutpat. Proin euismod laoreet feugiat. In pharetra nulla ut ipsum sodales non tempus quam condimentum. Duis consequat sollicitudin sapien, sit amet ultricies est elementum ac. Aliquam erat volutpat. Phasellus in mollis augue.

Website URL: http://www.youjoomla.com

Að Borgarvirki kemur mikill fjöldi ferðamanna og var orðið brýnt að endurnýja gamla skiltið sem var orðið máð og ólæsilegt. Skiltið á Hofi, sem einnig var orðið illa farið, var endurnýjað í samstarfi við félagið Landnám Ingimundar gamla, en það hefur unnið að því undanfarin ár að gera söguslóð Vatnsdælasögu aðgengilega fyrir ferðalanga og heldur úti heimasíðunni vatnsdalur.is

 

Evrópski menningarminjadagurinn verður haldinn hér á landi fimmtudaginn 8. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Eftirfarandi viðburðir verða í boði Fornleifaverndar ríkisins á deginum:

Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, Æðarrækt á Íslandi

Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu stendur fyrir fræðslukvöldi í fyrirlestraröðinni Spegill fortíðar- silfur framtíðar á þriðjudaginn kemur í Sjóminjsafninu Víkinni, Grandagarði.

Fornleifaþing 18. nóvember 2011 

Um þessar mundir eru tíu ár frá því að Fornleifavernd ríkisins hóf störf. Stofnunin stendur á tímamótum og mun væntanlega verða hluti nýrrar minjavörslustofnunar frá áramótum 2013.  Vegna afmælisins og tímamótanna blæs Fornleifaverndin til þings í salnum Yale, á 2. h. á Hótel Sögu föstudaginn 18. nóvember frá kl. 13.00 til 17.00. Þar er ætlunin að líta örlítið yfir farinn veg, en fyrst og fremst að horfa til framtíðar og viðra þá möguleika og tækifæri sem liggja grafin í íslenskum fornleifum. Efni þingsins er: Fornleifavernd á Íslandi, kvöð eða kostur ? 

6. janúar 2012 kl. 13

Fornleifavernd ríkisins boðar hér með til fundar föstudaginn 6. janúar 2012, kl. 13.00 og verður umræðuefnið endurgerð, viðhald og varðveisla fornleifa. Frummælandi verður Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins.

Fimmtudaginn 26. janúar hófst ný fyrirlestraröð FÍF og FFÍ 2012 sem að þessu sinni ber yfirskriftina: Úr gnægtabúri úthaganna: sel og jaðarbyggð í íslenskri fornleifafræði

Á næstu vikum munu 11 fræðimenn flytja fjölbreytileg erindi sem öll eiga það sameiginlegt að fjalla um nýlegar rannsóknir á seljum eða á býlum í úthögum – eða skilin þar á milli. Tveir til þrír fræðimenn flytja fyrirlestra hvert kvöld og á eftir verða umræður og spurningar. Fyrirlestrarnir verða á miðvikudags- og fimmtudagskvöldum og hefjast klukkan 20.00. Þeir verða haldnir í kjallara húsnæðis Fornleifaverndar ríkisins að Suðurgötu 39.

Leita

Minjastofnun Íslands - Suðurgötu 39 - 101 Reykjavík - Sími: 555-6630 - Fax: 555-6631 - Kt: 440113-0280 - Tölvupóstur:fornleifavernd(hja)fornleifavernd.is