torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Evrópski menningarminjadagurinn

Evrópski menningarminjadagurinn
European Heritage Day


Tilgangur Evrópska menningarminjadagsins er að vekja athygli alls almennings á gildi menningararfsins og að skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu.

Upphaf Evrópska menningarminjadagsins má rekja aftur til ársins 1985. Þá lagði Menningarmálaráðuneyti Frakklands til að Dagur sögulegra minja, sem þeir höfðu haldið árinu áður, næði til fleiri landa Evrópu. Fjölmargar Evrópuþjóðir svo sem Holland, Luxemburg, Malta, Belgía, Skotland og Svíþjóð hófu brátt að standa fyrir slíkum  viðburðum. Evrópuráðið stofnaði opinberlega til Evrópska menningarminjadagsins árið 1991 með stuðningi Evrópusambandsins.

Allt frá því að til dagsins var stofnað á Evrópuvísu hefur gildi og mikilvægi dagsins vaxið með hverju ári. Fjöldi þátttökuþjóða hefur aukist með hverju árinu, frá ellefu þjóðum árið 1991 til fjörtíu og átta þjóða í dag. Árangurinn hefur verið góður eins og sést best á heimsóknum tuttugu milljóna gesta til þeirra þrjátíu og tvö þúsund menningarminjastaða sem opnir hafa verið almenningi.

Evrópski menningarminjadagurinn er haldinn 5. september 2010. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Eftirfarandi viðburðir verða í boði Fornleifaverndar ríkisins þann dag:

 

Suðurland

 

Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands leiðir gesti um Reynisfjöru og nágrenni með dagskrá sem nefnist Um að ýta og lenda í brimsjó fyrir söndum. Þar mun Uggi fjalla um útræði í Reynisfjöru auk þess sem skoðaður verður Bæjarhellir (einnig nefndur Baðstofuhellir) en hann tengist sögu síra Jóns Steingrímssonar eldklerks. Mæting er við bílastæðið við Reynisfjöru kl. 14:00.

 

Reykjanes

 

Starfsmenn Fornleifaverndar þeir Kristinn Magnússon og Gunnar Bollason munu leiðsegja gestum um hinar fornu verbúðir á Selatöngum, austan Grindavíkur. Mæting er við bílastæðið kl. 13:30.

 

Vesturland

 

Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands heldur kl. 14:00 fyrirlestur í Ráðhúsinu í Stykkishólmi sem hann nefnir Neðansjávarfornleifafræði og strandminjar. Hvað má búast við að finna við Ísland?

 

Vestfirðir

 

Dr. Ragnar Edvardsson minjavörður Vestfjarða kynnir gestum Strákatanga við Hveravík í Steingrímsfirði (rétt sunnan við Drangsnes). Á Strákatanga var á 17. öld hvalveiðistöð Baska en þar hafa einnig fundist fjögur kuml frá landnámsöld. Ragnar verður á staðnum frá klukkan 11:00 og fram eftir degi.

 

Norðurland vestra

 

Þór Hjaltalín minjavörður Norðurlands vestra kynnir gamla verslunarstaðinn Grafarós, sunnan við Hofsós. Mæting er við upplýsingaskiltið um Grafarós kl. 14:00.

    

Norðurland eystra

 

Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra mun leiða gesti um hinn forna verslunarstað Gásir við Eyjafjörð kl. 14:00.

 

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL