Þann 21. febrúar, hlaut minjavörður Suðurlands, Uggi Ævarsson, Uppsveitarbrosið en það er viðurkenning sem veitt er árlega þeim aðila sem lagt hefur ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu og Flóa lið. Óskum Ugga til hamingju með þessa viðurkenningu. Sjá nánar á mbl.is
6. janúar 2012 kl. 13
Fornleifavernd ríkisins boðar hér með til fundar föstudaginn 6. janúar 2012, kl. 13.00 og verður umræðuefnið endurgerð, viðhald og varðveisla fornleifa. Frummælandi verður Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins.
Að Borgarvirki kemur mikill fjöldi ferðamanna og var orðið brýnt að endurnýja gamla skiltið sem var orðið máð og ólæsilegt. Skiltið á Hofi, sem einnig var orðið illa farið, var endurnýjað í samstarfi við félagið Landnám Ingimundar gamla, en það hefur unnið að því undanfarin ár að gera söguslóð Vatnsdælasögu aðgengilega fyrir ferðalanga og heldur úti heimasíðunni vatnsdalur.is
Archaeology of the recent past in the North Atlantic: problems and potentials
Nú í vetur hefur Félag íslenskra fornleifafræðinga og Fornleifafræðingafélag Íslandsboðið upp á röð fyrirlestra sem eiga það sameiginlegt að falla undir svið nútímafornleifafræði (frá 19.-20. öld). Síðasti fyrirlesturinn í þessari röð verður haldinn núna á fimmtudag, 19. maí. Að þessu sinni mun dr. Gavin Lucas, dósent við Háskóla Íslands gefa yfirlit um rannsóknir á sviði nútímafornleifafræði á Norður-Atlandshafssvæðinu og setja íslenskar rannsóknir um efnið í stærra samhengi. Í kjölfarið verður boðið uppá umræður og m.a. stefnt að því að ræða framtíð slíkra rannsókna hérlendis, möguleika þeirra og takmarkanir, m.a. í lagaumhverfi sem kann að vera að breytast. Sem fyrr er fyrirlesturinn öllum opinn og ókeypis. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og að neðan er að finna stutta samantekt um efni hans.
Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnuna standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Fornleifavernd tekur þátt í þessu átaki og í boði er fimm störf, þ. á m. skráningarstörf, staðarvörður á Þingeyrum og skipulag Húshólma sem er friðlýstur staður á Reykjanesinu. Áhugasamir eru beðnir um að kynna sér störfin á síðu Vinnumálastofnunar (www.vinnumálastofnun.is).
Minjar undir malbiki. Fornleifaskráning í þéttbýli
Þriðji og næstsíðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Félags íslenskra fornleifafræðinga og Fornleifafræðingafélags Íslands verður haldinn núna á fimmtudaginn, þann 14. apríl. Fyrirlesturinn verður sem fyrr í kjallara húsnæðis Fornleifaverndar ríkisins, Suðurgötu 39, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 20.00. Að þessu sinni mun Oddgeir Ísaksen, sem lauk M.A. prófi í fornleifafræði frá Háskóla Íslands nú í febrúar, flytja fyrirlestur sem byggir á mastersrannsókn hans og ber yfirskriftina:
Út er komin bókin Remote Sensing for Archaeological Heritage Management í ritstjórn David C. Cowley. Bókin byggir á fyrirlestrum sem fluttir voru á ráðstefnu sem haldin var á Íslandi árið 2010 á vegum Europae Archaeologiae Consilium (EAC) og Aerial Archaeology Research Group (AARG). Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkti ráðstefnuna og í tilefni af útgáfunni var ráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, afhent eintak af bókinni í morgun, 30. mars 2011.
Nánari upplýsingar um bókina og hvernig megi panta eintak er að finna í eftirfarandi eða á eftirfarandi heimasíðu.
Mikið af fornleifafræðilegum gögnum hafa landfræðilega tilvísun og er því tilvalið að miðla upplýsingum um fornleifar á vefsjá. Fornleifavernd ríkisins er þessa dagana að taka í gagnið sína vefsjá. Í fyrsta áfanga
eru sýnd í vefsjánni þau svæði sem þegar hafa verið skráð á vettvangi með hlekk í skýrslu ef höfundar hafa gefið leyfi til. Unnið er að því að setja inn og yfirfara þessar upplýsingar en grunnvinnuna unnu
Margrét S. Kristjánsdóttir og Davíð Bragi Konráðsson.
Minjastofnun Íslands - Suðurgötu 39 - 101 Reykjavík - Sími: 555-6630 - Fax: 555-6631 - Kt: 440113-0280 - Tölvupóstur:fornleifavernd(hja)fornleifavernd.is