Þú ert hér:Forsíða»Minjastofnun Íslands»Útgáfa»Útgáfa Fornleifaverndar ríkisins - Skýrslur Fornleifaverndar
Útgáfa Fornleifaverndar ríkisins
Yfirlit Leita af skrám Upp
Flokkur: Skýrslur Fornleifaverndar
Page 1 of 2
Fjöldi undirflokka: 1
Flokka eftir: Sjálfgefið | Nafni | Dagsetningu | Vinsælast | [Descending]
Subcategories:
Ársskýrslur Fornleifaverndar Skrár: 9

This is a Category example for illustration. This definition can be removed at any time.

Files:
Askja og Sigurðarskarð. Úttekt á fornleifum

Download

Skýrsla þessi er liður í fornleifaskráningu háhitasvæða sem til umfjöllunar eru í öðrum áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Hér verður fjallað um háhitasvæði við Öskju. Um vettvangsvinnu sáu Inga Sóley Kristjönudóttir og Sólborg Una Pálsdóttir, starfsmenn Fornleifaverndar ríkisins, sumarið 2008. Skýrslugerð var í höndum Ingu Sóleyjar Kristjönudóttir.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 20:09:51
1.26 MB
235
Brennisteinsfjöll. Fornleifaskráning

Download

Skýrsla þessi er liður í fornleifaskráningu háhitasvæða sem til umfjöllunar eru í 2. áfanga rammaáætlunar um verndum og nýtingu náttúrusvæða. Hér verður fjallað um háhitasvæði í Brennisteinsfjöllum. Um vettvangsvinnu sáu Agnes Stefánsdóttir og Kristinn Magnússon, starfsmenn Fornleifaverndar ríkisins, sumarið 2008. Á vettvangi voru minjarnar uppmældar með Trimble ProX GPS-tæki og ljósmyndaðar. Þá var ástand minjanna kannað og varðveislugildi minjanna metið. Við þá vinnu var stuðst við skráningarstaðla Fornleifaverndar ríkisins. Allar upplýsingarnar voru færðar inn í landfræðilegan gagnagrunn Fornleifaverndar ríkisins og sá Sólborg Una Pálsdóttir um þann hluta verksins. Skýrslugerð var í höndum Agnesar Stefánsdóttur.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 20:36:39
1.25 MB
285
Friðlýstar fornleifar í Dalvíkurbyggð. Úttekt

Download

Úttekt Fornleifaverndar ríkisins á friðlýstum fornleifum í Dalvíkurbyggð. Sigurður Bergsteinsson, minjavörður Norðurlands eystra og Sólborg Una Pálsdóttir, deildarstjóri skráningarmála, fóru á vettvang sumarið 2007 og tóku út og mældu upp minjarnar. Allar minjar voru skráðar hver fyrir sig í samræmi við skráningarreglur Fornleifaverndar en í skýrslunni er fjallað um hvern minjastað í heild sinni. Skýrslan er uppbyggð í samræmi við Fornleifaskrá. Skrá yfir friðlýstar fornleifar sem kom út árið 1990, þ.e. undir þær jarðir sem fornleifarnar tilheyra samkvæmt friðlýsingarskjali.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 20:56:08
7.35 MB
241
Flókatóftir á Barðaströnd. Prufurannsókn í september 2004

Download

Jóhann Ásmundsson, safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar, Hnjóti, hafði samband við Fornleifavernd ríkisins og lýsti yfir áhuga heimamanna á að láta rannsaka Flókatóftir. Fór hann þess á leit við Fornleifavend ríkisins að hún tæki að sér að grafa prufuskurði í Flókatóftir til að meta umfang þeirra og þó sérstaklega til að reyna að ná í prufur sem hægt væri að aldursgreina. Magnús A. Sigurðsson fór á staðinn ásamt Kristni Magnússyni, deildarstjóra hjá Fornleifavernd ríkisins og var dvalist við rannsóknir 20. og 21. september 2004. Magnús A. Sigurðsson sá um skýrslugerð.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 21:03:03
3.9 MB
215
Fornleifakönnun í kirkjugarði á Hofi í Vopnafirði

Download

Sumarið 2003 var kirkjugarðurinn á Hofi í Vopnafirði stækkaður til norðurs. Við það lenti óljós þúst, sem grunur lék á um að gæti verið fornar mannvirkjaleifar innan garðsins. Hulda Þráinsdóttir og Sigurður Bergsteinsson minjaverðir gerðu rannsókn á svæðinu 30. -31. september 2003. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort þústin hefði mannvistarleifar að geyma og hvort fornleifar gætu leynst annars staðar á hinu stækkaða svæði garðsins.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 21:21:26
1.51 MB
190
Fremrinámur. Fornleifaskráning

Download

Skýrsla þessi er liður í fornleifaskráningu háhitasvæða sem til umfjöllunar eru í öðrum áfanga rammaáætlunar um verndum og nýtingu náttúrusvæða. Hér verður fjallað um háhitasvæði í Fremrinámum. Um vettvangsvinnu sáu Inga Sóley Kristjönudóttir og Sigurður Bergsteinnsson, starfsmenn Fornleifaverndar ríkisins, sumarið 2008. Á vettvangi voru minjarnar uppmældar með Trimble ProX GPS-tæki og ljósmyndaðar. Þá var ástand minjanna kannað og varðveislugildi minjanna metið. Við þá vinnu var stuðst við skráningarstaðla Fornleifaverndar ríkisins. Allar upplýsingarnar voru færðar inn í landfræðilegan gagnagrunn Fornleifaverndar ríkisins og sá Sólborg Una Pálsdóttir um þann hluta verksins. Skýrslugerð var í höndum Ingu Sóleyjar Kristjönudóttur.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-04 21:45:32
2.29 MB
210
Fornleifar við Siglunes. Úttekt

Download

Úttekt Fornleifaverndar ríkisins árið 2009 á fornleifum við Siglunes sem er við mynni Siglufjarðar. Fornleifar þar eru í mikillri hættu vegna landbrots.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-05 10:59:59
8.45 MB
300
Granastaðir í Borgarbyggð. Forrannsókn í júlí 2005

Download

Magnús A. Sigurðsson, minjavörður Vesturlands, gerði könnunarskurði árið 2005 á fyrirhuguðum byggingarreit við Granastaði í Borgarbyggð til að meta eðli og umfang minja sem heimildir eru til um á svæðinu.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-05 11:04:35
4.86 MB
277
Hamarsbraut 17 í Hafnarfirði. Fornleifarannsókn

Download

Í umsögn Fornleifaverndar ríkisins um fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi lóðar við Hamarsbraut 17 í Hafnarfirði voru sett fram ákveðin skilyrði fyrir því að fallist yrði á nýbyggingu á lóðinni. Nauðsynlegt var talið að þær minjar sem eru á lóðinni yrðu skráðar nákvæmlega. Þá þyrfti að grafa könnunarskurði á svæðinu til að kanna umfang og eðli sýnilegra minja og gang úr skugga um hvort eldri mannvistarleifar leyndust undir yfirborði. Starfsmenn Fornleifaverndar ríkisins, Hákon Jensson, Katrín Gunnarsdóttir og Kristinn Magnússon grófu fjóra könnunarskurði á lóðinni dagana 5. – 7. júlí 2005.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-05 11:10:39
1.15 MB
295
Úttekt á manngerðum hellum á Suðurlandi sumarið 2003

Download

Á árinu 2000 urðu tveir stórir jarðskjálftar á Suðurlandi. Á þeim tíma voru friðlýstar fornleifar í umsjá Þjóðminjasafns Íslands.  Með breytingu á þjóðminjalögum 2001 var Fornleifavernd ríkisins komið á fót og umsjáin fluttist yfir til þeirrar stofnunar. Í kjölfar jarðskjáftanna aflaði Þjóðminjasafnið upplýsinga hjá landeigendum um hvort skemmdir hefðu orðið á hellunum í skjálftunum. Í ljós kom að víða höfðu hellar skemmst og hleðslur í þeim hrunið. Hjá mörgum landeigendum kom einnig fram að hellar í þeirra landi hefðu látið á sjá í gegnum tíðina og viðhaldi verið illa sinnt.  Þjóðminjasafnið sótti um styrk til ríkissjóðs til að gera úttekt á ástandi hellanna og til viðgerða á þeim sem skemmst höfðu af völdum jarðskjálftanna.  Veittur var styrkur að upphæð 4,8 millj. kr. í lok árs 2002 sem rann til Fornleifaverndar ríkisins.  Úttekt var gerð af starfsmönnum Fornleifaverndar ríkisins, Agnesi Stefánsdóttur og Kristni Magnússyni, sumarið 2003.




Sett inn
Stærð
Fjöldi niðurhala
2012-10-05 11:34:47
3.12 MB
269

Vefsjá

Vefsjá

Minjastofnun Íslands - Suðurgötu 39 - 101 Reykjavík - Sími: 555-6630 - Fax: 555-6631 - Kt: 440113-0280 - Tölvupóstur:fornleifavernd(hja)fornleifavernd.is